Shipping policy
Afgreiðsla pantana
Pantanir eru afgreiddar innan 1-5 virka dag eftir pöntun. Ef um sérpöntun er að ræða ferlið í heild sinni tekur mislangan tíma, en er í samráði við viðskiptavin. Sé varan ekki til verður haft samband við kaupanda og tilkynnt um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd ef þess er óskað.
Ef kaupandi óskar eftir heimsendingu þá eru vörurnar sendar með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Einnig er boðið upp á að sækja vörur eða fá heimsent á Akureyri kostnaðarlausu. Smolli ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á á týndum sendingum eða því tjóni sem kann að verða í flutningi hjá þriðja aðila.
Við leggjum metnað í að varan berist til þín í fullkomnu ásigkomulagi. Þess vegna ábyrgjumst við vandaða pökkun og frágang vörunnar áður en hún fer frá okkur.
Móttaka vöru
Kaupandi skal við móttöku vöru athuga án tafar og innan eðlilegra tímamarka hvort varan sé ógölluð og í samræmi við pöntunarstaðfestingu og vörulýsingu. Þá skal kaupandi kanna hvort um sé að ræða skemmdir á vörunni tilkomnar vegna flutnings. Viðskiptavinur hefur 14 daga til að ganga úr skugga um að vara sé óskemmd vegna flutnings. Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Kaupandi skuldbindur sig til að gefa réttar upplýsingar við kaupin, svo sem heimilisfang og netfang.