Skilmálar
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar.
Með því að nota vefverslun Studio Vast samþykkir þú þessa skilmála.
Skilmálar þessir gilda frá 30. apríl 2020.
Almennt
Um fyrirtækið
Vefverslun Studio Vast er rekin af Smolli ehf.
Kt. 410212-0480
VSK númer: 110193.
Póstfang: Pósthólf 20, 602 Akureyri
Lögheimili: Hámundarstöðum 2, 691 Vopnafjörður
Allar upplýsingar á vefnum eru með fyrirvara um prentvillur, verðbreytingar og birgðastöðu.
Öll ákvæði skilmálanna hér að neðan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir varnarþingi félagsins, Héraðsdómi Reykjavíkur.
Eftirfarandi skilmálar gilda um viðskipti seljanda og kaupanda svo og um notkun á vefversluninni vast.is. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur seljanda annars vegar og kaupanda hins vegar. Þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir gilda um viðskiptin lög um neytendakaup nr. 48/2003 og eftir atvikum lög um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og lög um þjónustukaup nr. 42/2000.
Höfundarréttur
Allt efni á vefsvæði Studio Vast, vast.is, er eign Smolli ehf. Allar vörur sem birtast hér á síðunni eru varðar með höfundarétti hönnuða og nytjaleyfi fyrirtækisins og má ekki með neinum hætti afrita né nýta á neinn annan hátt, samanber lögum um höfundarétt. Ekki má breyta, endurgera, fjölfalda, selja eða deila verkum, að hluta til eða í heilu lagi, með þriðja aðila án samþykkis höfundar. Þetta gildir einnig um drög og rafræn skjöl.
Vörur og þjónusta
Vörur í vefverslun okkar, vast.is, eru tvennskonar: hönnunarvörur framleiddar af fyrirtækinu og afkeyptar vörur frá heilsölufyrirtækjum eða innfluttar af okkur.
Vörurnar okkar eins og sérmerkt kerti, boðskort, sérhönnuð boðskort eru sérframleiddar/handgerðar og unnar í samráði við viðskiptavin, því má búast við því að lokaútkoma sé ekki nákvæmlega eins og hún birtist á síðunni.
Seljandi áskilur sér rétt til að breyta verði á vöru án fyrirvara. Það verð gildir er fram kemur á pöntunarstaðfestingu kaupanda hverju sinni.
Heildarkostnaður við kaup á vöru er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega. Hann inniheldur allan kostnað við pöntun s.s. þjónustu, sendingargjald o.s.frv.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Ef um tilbúnar vörur er að ræða skilafrestur er 30 dagar, þ.e. hafi kaupandi keypt vöruna í gegnum vast.is hefur hann 30 daga til að hætta við kaup á vöru að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi og í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum móttakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með ef endurgreiðsla á að eiga sér stað.
Sérpantaðar vörur fela í sér lokapróförk sem viðskiptavinir fá til samþykkis áður en efnið fer í framleiðslu. Það er á þeirra ábyrgð að prófarkalesa og ganga úr skugga um að engin mistök séu áður hún er samþykkt. Smolli ehf. ber ekki ábyrgð á stafsetningar- eða innsláttarvillum sem berast okkur frá viðskiptavin.
Ef um sérpöntun er að ræða og framleiða þarf efni aftur vegna þessa er það á ábyrgð viðskiptavinar og greiðir hann kostnað þess. Ef galli er á framleiðslunni af okkar völdum munum við annaðhvort framleiðum vörurnar aftur, viðskiptavini að kostnaðarlausu eða endurgreiða að fullu það sem gallað var. Sendingarkostnaður er í þessu tilviki greiddur af söluaðila. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Afgreiðsla pantana
Pantanir eru afgreiddar innan 1-5 virka dag eftir pöntun. Ef um sérpöntun er að ræða ferlið í heild sinni tekur mislangan tíma, en er í samráði við viðskiptavin.
Sé varan ekki til verður haft samband við kaupanda og tilkynnt um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd ef þess er óskað. Ef kaupandi óskar eftir heimsendingu þá eru vörurnar sendar með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Einnig er boðið upp á að sækja vörur eða fá heimsent á Akureyri kostnaðarlausu.
Smolli ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á á týndum sendingum eða því tjóni sem kann að verða í flutningi.
Við leggjum metnað í að varan berist til þín í fullkomnu ásigkomulagi. Þess vegna ábyrgjumst við vandaða pökkun og frágang vörunnar áður en hún fer frá okkur.
Greiðsla pantana og öryggi
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% virðisaukaskatti. Verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og geta breyst án fyrirvara. Við áskiljum okkur rétt til að ljúka ekki viðskiptum ef rangt verð hefur verið gefið upp. Mögulegt er að greiða pöntun í vefverslun með helstu debet- og kreditkortum og fer greiðsla fram í gegnum örugga greiðslugátt hjá Borgun. Greiðslan mun birtast á kortayfirliti þínu á sama hátt og almennar færslur í verslun. Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.
Fyrir þjónustu eins og sérpantað skrautritun t.d. í gestabók bjóðum við að afgreiða með millifærslu.
Móttaka vöru
Kaupandi skal við móttöku vöru athuga án tafar og innan eðlilegra tímamarka hvort varan sé ógölluð og í samræmi við pöntunarstaðfestingu og vörulýsingu. Þá skal kaupandi kanna hvort um sé að ræða skemmdir á vörunni tilkomnar vegna flutnings. Viðskiptavinur hefur 14 daga til að ganga úr skugga um að vara sé óskemmd vegna flutnings.
Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega.
Kaupandi skuldbindur sig til að gefa réttar upplýsingar við kaupin, svo sem heimilisfang og netfang.
Trúnaður
Smolli ehf. heitir kaupanda fullum trúnaði varðandi allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhendar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Þegar vara er pöntun í vefverslun vast.is eru upplýsingar um greiðslukort aðeins vistaðar rétt á meðan viðskiptin fara fram og eru samþykkt í kerfinu. Borgun geymir kortaupplýsingarnar í öruggum kerfum sínum, en ekki á greiðslusíðunni sjálfri. Um leið og pöntunin er staðfest og viðskiptavinur fær staðfestingu í hendurnar verður öllum upplýsingum um greiðslukortið eytt samstundis úr kerfinu. Kortaupplýsingarnar eru því alltaf öruggar á meðan öllu ferlinu stendur.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.